Listkennsludeild
Í listkennsludeild eru þrjár leiðir í námi: meistarnám í listkennslu, 1 árs meistaranám fyrir þá sem hafa lokið diplóma frá LHÍ og diplómanám til kennsluréttinda.
Meistaranám í listkennslu er ný námsleið við Listaháskóla Íslands. Námið er 120 eininga M.A. nám eða fjögurra anna fullt staðnám. Nemendur geta tekið námið á lengri tíma en þó ekki lengur en átta önnum. Einnig er í boði 1 árs meistaranám til M.A. prófs fyrir þá sem hafa lokið 60 eininga diplóma frá LHÍ. Diplómanám til kennsluréttinda er 60 eininga nám.
Markmið Listaháskólans er að útskrifa kennara og leiðtoga sem hafa bæði mikla fagþekkingu í sinni listgrein og á sviði kennslu og miðlunar. Með því að mennta listamenn til kennslustarfa vill skólinn efla hlut lifandi lista í fræðslu og menntun allra landsmanna og auka skilning á gildi skapandi hugsunar í öllu skólastarfi.
Deildarforseti: Kristín Valsdóttir
Deildarfulltrúi: Svanborg Matthíasdóttir


